Ísland|UK|USA
Verðlisti | Gjafabréf Panta tíma
The Ward
Andlitsmeðferðir

SkinPen

Náttúruleg endurnýjun húðarinnar

Panta tíma →
Heilbrigðari húð.
Náttúrulegur ljómi.
Renew
Rebuild
Reveal you

Hvað er SkinPen?

Smánálameðferð (micro-needling) hefur margvísleg áhrif á húðina og hefur verið notuð í áraraðir við ýmsum húðvandamálum og í útlitsbætandi tilgangi.

Meðferðin þéttir húðina, styrkir hana og gerir hana stinnari. Hún grynnkar hrukkur og fínar línur og er einnig notuð til að vinna á bóluörum og grófum svitaholum á andliti, hálsi og baki.

SkinPen er framleiddur í Bandaríkjunum og fjöldi rannsókna liggur að baki SkinPen meðferðinni. SkinPen hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir hönnun og árangur.

Meðferðartími 30–60 mínútur
Árangur sést yfirleitt eftir 2–4 vikur
Fjöldi meðferða 3–6 (fer eftir markmiðum)
Hversu lengi endist árangur 6–12 mánuðir
Verð frá 42.000 kr.
Panta tíma →

Hvað gerir SkinPen?

Eykur kollagenframleiðslu
Bætir húðáferð og teygjanleika
Dregur úr fínum línum og hrukkum
Jafnar litatón og dregur úr dökkum blettum
Bætir ör, stækkaðar húðholur og ójafna húð

Hentar fyrir

  • ✓Fínar línur og hrukkur
  • ✓Ójafna áferð húðar
  • ✓Pigmentbreytingar
  • ✓Stækkaðar húðholur
  • ✓Ör eftir bólur
  • ✓Allar húðgerðir
Stronger
Smoother
Healthier skin

Svona fer meðferðin fram

01 Húðgreining Húðin er metin og markmið meðferðar skilgreind.
02 Undirbúningur Húðin er hreinsuð og deyfikrem borið á hana til að tryggja þægindi.
03 Meðferð SkinPen-pennanum er rennt yfir meðferðarsvæðin og örfínar nálar örva endurnýjun húðarinnar.
04 Eftirmeðferð Róandi og styrkjandi krem er borið á húðina og þú færð ráð um umhirðu húðarinnar heima.
Náttúruleg endurnýjun. Varanlegur árangur.

Árangur

Árangur sést yfirleitt eftir 2–4 vikur þegar húðin hefur sett af stað endurnýjunarferlið. Bestur árangur næst yfirleitt með 3–6 meðferðum með 4–6 vikna millibili. Húðin verður sléttari, heilbrigðari og fær náttúrulegan ljóma.

Small
steps.
Lasting
change.

Algengar spurningar

Invest
in your
longevity.

Þú gætir líka haft áhuga á

Profhilo Ferskari, stinnari og ljómandi húð. → Efnameðferð Jafnar húðlit og bætir gæði húðarinnar. → Húðþétting Styrkir húðina og eykur teygjanleika. →