Ísland|UK|USA
Verðlisti | Gjafabréf Panta tíma
The Ward
Forsíða›Persónuvernd og skilmálar

Persónuverndarstefna

The Ward ehf. leggur mikla áherslu á að tryggja vernd persónuupplýsinga og að vinnsla þeirra sé í samræmi við gildandi lög og reglur. Persónuverndarstefnan tekur til söfnunar og vinnslu persónuupplýsinga í samskiptum The Ward ehf. við viðskiptamenn sína. Tilgangurinn með persónuverndarstefnu þessari er að upplýsa viðskiptamenn The Ward ehf. um hvernig og hvers vegna persónuupplýsingum er safnað og hvernig þær eru meðhöndlaðar. Persónuverndarstefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hvaða persónuupplýsingum safnar The Ward ehf.?

Persónuupplýsingar eru sérhverjar upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling; einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.

Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.

The Ward ehf. safnar ýmsum tegundum persónuupplýsinga um viðskiptamenn sína og tengiliði þeirra, sé um lögaðila að ræða. Vinnsla persónuupplýsinga getur t.a.m. varðað:

  • nöfn
  • kennitölur
  • netföng
  • símanúmer
  • heimilisföng
  • ljósmyndir
  • heilsufarsupplýsingar

Í hvaða tilgangi vinnur The Ward ehf. með persónuupplýsingar?

The Ward ehf. notar persónuupplýsingar til að veita þjónustu til viðskiptamanna, meðal annars:

  • til þess að auðkenna og hafa samband við viðskiptamenn.
  • til að skrá tímabókanir í einstaka meðferðir.
  • til þess að inna af hendi þjónustu við viðskiptamenn.
  • til þess að taka á móti greiðslum frá viðskiptamönnum.

Þegar einstaklingar hafa samband við The Ward ehf. í gegnum vefsíðu félagsins eða með tölvupósti er litið svo á að þeir samþykki þar með skráningu og notkun The Ward ehf. á persónuupplýsingunum sem fram koma í viðkomandi samskiptum.

Hvernig varðveitir The Ward ehf. persónuupplýsingar?

The Ward ehf. varðveitir persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur.

The Ward ehf. varðveitir persónuupplýsingar um viðskiptamenn eins lengi og nauðsynlegt er til að uppfylla tilganginn með söfnun þeirra. The Ward ehf. varðveitir gögn sem viðskiptamönnum tengjast, þ.m.t. persónuupplýsingar, að jafnaði ekki lengur en fimm ár frá því að líkamsmeðferð er lokið, að undanskildum gögnum sem The Ward ehf. er skylt að varðveita lengur samkvæmt lögum eða ef málefnaleg ástæða er fyrir áframhaldandi varðveislu þeirra.

Bókhaldsgögn í tengslum við þjónustu The Ward ehf. til viðskiptamanna eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

Viðtakendur persónuupplýsinga

The Ward ehf. miðlar ekki persónuupplýsingum um viðskiptamenn til þriðju aðila nema með ótvíræðu samþykki þeirra eða til þess að uppfylla skyldur samkvæmt samningi.

The Ward ehf. miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema hafa til þess heimild á grundvelli gildandi persónuverndarlaga og -reglna.

Réttindi skráðra einstaklinga

Viðskiptamenn eiga rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að persónuupplýsingum um þá sjálfa sem The Ward ehf. hefur með höndum. Þeir eiga rétt á að afturkalla samþykki sitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem byggð er á samþykki hvenær sem er. Þeir eiga einnig rétt á að óska eftir að láta leiðrétta, eyða eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga um sig eða andmæla slíkri vinnslu. Í ákveðnum tilvikum geta þeir einnig átt rétt á flutningi persónuupplýsinga sem þeir hafa látið The Ward ehf. í té til annars ábyrgðaraðila. Framangreindum réttindum kunna þó að vera sett takmörk í gildandi lögum og reglum.

Viðskiptamenn eiga rétt á upplýsingum um uppruna persónuupplýsinga sem ekki er aflað frá þeim sjálfum.

Vafrakökur

Vefsíða The Ward notar vafrakökur (e. cookies). Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vistast í tölvu eða snjalltæki notanda þegar vefsíðan er heimsótt.

Nauðsynlegar vafrakökur eru notaðar til að tryggja eðlilega virkni vefsíðunnar. Aðrar vafrakökur, svo sem til greiningar á notkun vefsins, eru aðeins notaðar með samþykki notanda.

Notendur geta hvenær sem er eytt vafrakökum eða stillt vafra sinn þannig að hann hafni þeim. Það getur þó haft áhrif á virkni vefsíðunnar.

Hvert á að snúa sér?

Viðskiptamenn sem vilja nýta réttindi sín, eða hafa spurningar um vinnslu persónuupplýsinga hjá The Ward ehf., geta haft samband í gegnum formið á síðunni Hafa samband eða í síma 768 9600.

Telji viðskiptamaður að vinnsla persónuupplýsinga um hann brjóti í bága við lög getur hann sent kvörtun til Persónuverndar, personuvernd.is.

Persónuverndarstefna þessi var sett 1. nóvember 2021

Verð og skilmálar

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur. The Ward áskilur sér rétt til að breyta verði án sérstaks fyrirvara.

Inneign og fyrirframgreiddar meðferðir

Inneign og fyrirframgreiddar meðferðir, þar með talið meðferðarpakkar, eru persónubundin og ekki hægt að framselja til þriðja aðila.

Eftir að fyrsta meðferð í meðferðarpakka hefur verið framkvæmd er almennt ekki veitt endurgreiðsla vegna ónotaðra meðferða. Ónotaðar meðferðir má þó að jafnaði nýta sem inneign í aðrar meðferðir hjá The Ward innan 12 mánaða frá kaupum, nema lög kveði á um annað.

Tilboðsverð og afslættir

Meðferðir og meðferðarpakkar sem keypt eru á tilboðsverði, með afslætti eða samkvæmt sérstökum kynningarkjörum eru bundin við þá meðferð eða meðferðarpakka sem keyptur var.

Ekki er hægt að skipta slíkri meðferð eða meðferðarpakka yfir í aðra meðferð eða meðferðarpakka síðar, né nýta mismun í verði sem inneign, nema annað sé sérstaklega tekið fram við kaup eða lög kveði á um annað.

Þetta á meðal annars við um tímabundin tilboð og kynningar, svo sem Black Friday-tilboð og sambærileg sérkjör.

Gildistími

Inneign og ónotaðar meðferðir samkvæmt meðferðarpökkum gilda í 12 mánuði frá kaupum, nema annað sé sérstaklega tekið fram við kaup eða lög kveði á um annað.