Næringarmeðferðir
Sérsniðnar meðferðir fyrir betri heilsu og meiri vellíðan.
Við hjálpum þér að ná betri heilsu, meiri orku og jafnvægi með persónulegri nálgun þar sem horft er heildrænt á líkamann, lífsstílinn og þín markmið.
Panta ráðgjöf →Hvernig fer meðferðin fram?
Við byrjum á ítarlegu viðtali þar sem farið er yfir heilsufarssögu, einkenni, lífsstíl og markmið. Í kjölfarið eru gerðar viðeigandi prufur, svo sem blóð-, munnvatns- og þvagprufur, til að fá heildstæða mynd af stöðu líkamans.
Á grundvelli niðurstaðna er mótuð sérsniðin meðferðaráætlun sem styður við þínar þarfir og markmið.
Hvað felst í meðferðinni?
Sérsniðnar meðferðaráætlanir
Engir tveir einstaklingar eru eins. Þess vegna er hver meðferðaráætlun sérsniðin að þínum lífsstíl, heilsufari og markmiðum. Markmiðið er að finna rót vandans, tryggja betra jafnvægi og styðja líkamann til lengri tíma.
- ✓Meiri orka og andleg skýrleiki
- ✓Betri svefn og minni streita
- ✓Sterkara ónæmiskerfi
- ✓Jafnvægi í meltingu og hormónum
- ✓Heildræn nálgun á heilsu og vellíðan
Næring í æð – eingöngu í Englandi
Næring í æð er öflug leið til að styðja við heilsu, orku og endurheimt. Meðferðin felur í sér vítamín, steinefni og andoxunarefni sem gefin eru beint í blóðrásina fyrir hámarks upptöku og áhrif.
Hreinsikúrar / Detox
Hreinsikúrar geta stutt við efnaskipti, meltingu og almenna líðan. Markmiðið er að styðja líkamann í að losa sig við óæskileg efni, draga úr bólgum og auka orku.
- ✓Betri melting og léttari líðan
- ✓Stuðningur við lifrarstarfsemi
- ✓Hreinsun og endurnýjun
- ✓Aukin orka og skýrari hugsun
Svona fer meðferðin fram
- 01 Viðtal Ítarlegt viðtal þar sem farið er yfir heilsufarssögu, einkenni, lífsstíl og markmið.
- 02 Prufur Gerðar eru blóð-, munnvatns- og þvagprufur eftir þörfum.
- 03 Greining Niðurstöður eru greindar og heildstæð mynd af stöðu líkamans sett fram.
- 04 Sérsniðin áætlun Þú færð persónulega meðferðaráætlun með næringu, fæðubótarefnum og öðrum stuðningi eftir þörfum.
Bókaðu ráðgjöf
Taktu fyrsta skrefið í átt að betri heilsu og meiri vellíðan. Við erum hér til að aðstoða þig.
