Ísland|UK|USA
Verðlisti | Gjafabréf Panta tíma
The Ward
Forsíða›Andlitsmeðferðir›Húðþétting
Andlitsmeðferðir

Húðþétting

Lyfting og þétting með markvissri ómorku

Panta tíma →
Stinnari húð.
Án inngrips.
Lift
Tighten
Contour

Hvað er húðþétting?

Húðþétting (High Intensity Focused Ultrasound) er meðferð sem vinnur gegn öldrun og stinnir og lyftir húðinni.

Heitri orku (58–70 °C) er beint ofan í undirlag húðarinnar. Frumurnar byrja þá að vinna af krafti við að endurnýja sig og kollagenframleiðsla örvast. Þar af leiðandi stinnist húðin og „dregst saman“ þar sem hún hefur byrjað að síga, auk þess sem línur minnka.

Þetta er sú meðferð sem kemst næst skurðaðgerð án þess inngrips sem henni fylgir. The Ward notar eingöngu húðþéttingarvél í hæsta gæðaflokki og hefur sérhæft sig í sérstöku meðferðarplani sem gefur frábæran árangur.

Meðferðartími 60–75 mínútur
Árangur sést yfirleitt eftir 2–3 mánuðir
Fjöldi meðferða 1 (langflestir þurfa aðeins eitt skipti)
Hversu lengi endist árangur Aukin kollagenframleiðsla í rúmt ár
Verð frá 59.000 kr. Sjá verðlista →
Panta tíma →

Hvað gerir meðferðin?

Lyftir og þéttir húð
Skerpir kjálkalínu
Örvar kollagenframleiðslu í dýpri lögum húðarinnar
Enginn batatími

Hentar fyrir

  • ✓Slappa húð á andliti og hálsi
  • ✓Óskýra kjálkalínu
  • ✓Signar augabrúnir
  • ✓Þá sem vilja lyftingu án aðgerðar
  • ✓Flestar húðgerðir
The Ward
Reykjavík

Svona fer meðferðin fram

01 Ráðgjöf Andlit og háls eru metin og svæði kortlögð.
02 Undirbúningur Húðin er hreinsuð og gel borið á.
03 Meðferð Ómorka er leidd markvisst á valin svæði.
04 Eftirfylgni Við fylgjumst með árangri næstu mánuði.
Djúp þétting. Varanleg lyfting.

Árangur

Árangurinn kemur í ljós á tveimur til þremur mánuðum. Á þeim tíma eykst kollagenframleiðslan mikið og í rúmt ár eftir meðferðina framleiðir líkaminn mun meira kollagen en fyrir hana.

Algengar spurningar

Invest
in your
longevity.

Þú gætir líka haft áhuga á

Microneedling Radio Frequency (MRF) Stinnari og jafnari húð. → PDO þræðing Lyfting og skarpari andlitsdrættir. → Varalyfting með húðþéttingu Lyfting á varasvæði án fylliefna. →