A brighter tomorrow.
The Ward veitir sérhæfða þjónustu er varðar heilbrigði í næringarmeðferðum, gegn öldrun, þróuðum fegrunarmeðferðum og sérstökum meðferðum fyrir íþróttafólk á Íslandi og erlendis.
The Ward mun einnig reka heilsu- og detoxstöð á Íslandi þar sem hreina loftið, vatnið og náttúran er kjörið fyrir slíka starfsemi. Stöðin verður ætluð bæði íslenskum og erlendum sjúklingum sem hafa átt í löngum og/eða alvarlegum veikindum.
Okkar megintilgangur er að hjálpa fólki að öðlast og halda heilsu og að snúa við ótímabærri öldrun.
Frá 2010 til dagsins í dag
Eva-Lísa Ward opnaði The Ward árið 2010. Hún hefur yfir 20 ára reynslu af heilsumeðferðum og útlitsbreytandi meðferðum. Frá upphafi hefur markmiðið verið skýrt — að veita framúrskarandi þjónustu, byggða á fagmennsku, öryggi og persónulegri nálgun.
Í dag er The Ward leiðandi á Íslandi í útlitsbreytandi meðferðum, heilsu og endurnýjun. Þjónustan byggir á sameiningu þekkingar, reynslu og nýjustu tækni á erlendum grunni.
Að veita framúrskarandi þjónustu í útlitsbreytandi meðferðum og heilsu.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, öryggi og persónulega nálgun. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustu, með nýjustu tækni og þekkingu á sviði heilsu, fegrunar og forvarna.
Heildræn nálgun
Við horfum á heildarmyndina og tengjum saman heilsu, útlit og líðan.
Fagmennska
Við byggjum á þekkingu, reynslu og nýjustu tækni.
Persónuleg þjónusta
Við hlustum, ráðleggjum og finnum það sem hentar þér best.
Náttúrulegur árangur
Við leggjum áherslu á varanlegan og heilbrigðan árangur.
Eva-Lísa Ward
Eigandi og stofnandi Næringarmeðferð · Íþróttafólk · Útlitsbreytandi meðferðirEva-Lísa Ward, eigandi og stofnandi The Ward Group, hefur umfangsmikla þekkingu og reynslu á sviði næringarmeðferða, meðferða fyrir íþróttafólk og útlitsbreytandi meðferða (Level 7 — Master Aesthetic Practitioner 7 (MA7), MSc / PGDip Aesthetic Medicine UDIMA, næringarþerapisti, læknanemi) sem hún hefur nýtt til hjálpar skjólstæðingum sínum í 20 ár.
Hún er brautryðjandi í Bretlandi í notkun á vítamínblöndum sem gefnar eru beint í æð og er þekkt fyrir einstakan árangur og víðtæka þekkingu á næringu og áhrifum hennar á mannslíkamann.
Karolína Lojewska
TannlæknirKarolína Lojewska er menntaður tannlæknir og lauk námi árið 2024 í Debrecen í Ungverjalandi. Frá upphafi hefur hún haft mikinn áhuga á fegrunar- og útlitsbreytandi meðferðum.
Hún hefur lokið viðurkenndu námi í Botox- og fylliefnameðferðum í Bretlandi og í framhaldi af því gengist undir þjálfun í samræmi við aðferðafræði The Ward. Karolína leggur ríka áherslu á örugg og fagleg vinnubrögð og að ná fram náttúrulegu jafnvægi og fallegu útliti.
Soffía Steingrímsdóttir
HjúkrunarfræðingurSoffía Steingrímsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur yfir 30 ára starfsreynslu á Íslandi og í Bretlandi, þar af lengst af á bráðamóttöku. Hún hefur lokið viðeigandi námskeiðum í útlitsbreytandi meðferðum í Bretlandi og í framhaldi af því ítarlegri og krefjandi þjálfun hjá The Ward.
Soffía leggur ríka áherslu á fagleg og örugg vinnubrögð og að ná fram náttúrulegu jafnvægi og fallegu útliti, í samræmi við þá aðferðafræði og gæðastaðla sem einkenna The Ward.
Kristín Agnarsdóttir
HjúkrunarfræðingurKristín Agnarsdóttir er með yfir 25 ára reynslu sem hjúkrunarfræðingur á Landspítala Íslands þar sem hún starfaði meðal annars á bráðamóttöku og geðdeild. Hún er með víðtæka reynslu í klínískri umönnun, lýðheilsu og offitustjórnun.
Einnig hefur Kristín unnið við dreifingu, sölu og kynningu til lækna á fyllingarefnum. Nálgun Kristínar í störfum sínum miðast fyrst og fremst við velferð sjúklinga og líðan þeirra, hvort sem hún er í stjórnunarstöðu, klínískri umönnun eða útlitsbreytandi meðferðum (aesthetics).
Guðmundur Birkir Pálmason
(Gummi Kíró)
Kírópraktor The Ward leggur áherslu á samstarf með fagfólki úr ýmsum greinum sem deilir sömu hugmyndafræði um heildrænar meðferðir og gæði. Guðmundur Birkir Pálmason útskrifaðist sem kírópraktor árið 2010 og hefur mikla reynslu af því að starfa bæði erlendis og á Íslandi.
Guðmundur er eigandi Kírópraktorstofunnar Reykjavíkur og einnig Kírópraktors Sthlm í Stokkhólmi og fer reglulega þangað til að bæði kenna og starfa þar við sitt fag. Guðmundur vann í meira en áratug sem einkaþjálfari og sameinar æfingar og teygjur mikið í sínum meðferðum. Einnig er hann í góðu samstarfi við fagfólk í heilbrigðiskerfinu og reynir að sameina krafta þeirra sem við eiga hverju sinni.
“Heilsa er undirstaða alls þess sem við gerum í lífinu.” The Ward
The Ward Foundation
The Ward Foundation er sjóður sem byggist á framlögum styrktaraðila, fyrrum sjúklinga og/eða fólks sem að þeim standa. Tilgangur sjóðsins er að bjóða upp á niðurgreiddar meðferðir fyrir langveika sjúklinga sem hafa ekki efni á þeirri þjónustu sem The Ward býður upp á.
Í framtíðinni bætast vonandi við framlög úr opinberum sjóðum svo auka megi við þennan þátt starfseminnar.
Heilbrigðari þú. Bjartari framtíð.
Við erum hér til að styðja þig á leiðinni — með þekkingu, reynslu og persónulegri þjónustu sem byggir á trausti, fagmennsku og heildrænni nálgun.
