Ísland|UK|USA
Verðlisti | Gjafabréf Panta tíma
The Ward
Forsíða›Andlitsmeðferðir›PRP fyrir andlit
Andlitsmeðferðir

PRP fyrir andlit

Náttúruleg endurnýjun með þínum eigin blóðvökva

Panta tíma →
Þinn eigin kraftur.
Náttúruleg endurnýjun.
Natural
Renew
Restore

Hvað er PRP fyrir andlit?

PRP stendur fyrir „platelet rich plasma“ sem er í raun þinn eigin blóðvökvi, meðhöndlaður á ákveðinn hátt.

Fyrst er blóð tekið úr handlegg og sett í þeytivindu. Við það skilst blóðvökvinn frá rauðu blóðkornunum. Í blóðvökvanum eru blóðflögur sem innihalda vaxtarhvetjandi efni.

Blóðvökvanum er sprautað inn í húðina þar sem hann örvar hana til að framleiða nýjar frumur.

Það er eðlilegt að andlitið glati fyllingu með aldri eða vegna þyngdartaps og PRP meðferðin á sérstaklega vel við í þeim tilfellum. Einnig er hægt að nota PRP meðferð með svipuðum árangri fyrir líkamann.

Meðferðartími 60 mínútur
Árangur sést yfirleitt eftir 3–6 vikur
Fjöldi meðferða 3 (með 4 vikna millibili)
Hversu lengi endist árangur 12–18 mánuðir
Verð frá 80.000 kr. Sjá verðlista →
Panta tíma →

Hvað gerir meðferðin?

Örvar kollagen
Bætir áferð og ljóma
Dregur úr fínum línum
Algjörlega náttúrulegt

Hentar fyrir

  • ✓Fínar línur
  • ✓Tap á fyllingu með aldri
  • ✓Tap á fyllingu eftir þyngdartap
  • ✓Daufan og þreyttan litarhátt
  • ✓Ójafna húðáferð
  • ✓Líkamann – með svipuðum árangri
The Ward
Reykjavík

Svona fer meðferðin fram

01 Blóðtaka Blóð er tekið úr handlegg.
02 Þeytivinda Blóðið er sett í þeytivindu og blóðvökvinn skilinn frá rauðu blóðkornunum.
03 Meðferð Blóðvökvanum, ríkum af blóðflögum, er sprautað inn í húðina.
04 Endurnýjun Vaxtarhvetjandi efnin örva húðina til að framleiða nýjar frumur.
Þinn eigin kraftur. Náttúruleg endurnýjun.

Árangur

Fínar línur mildast eða hverfa, andlitið verður fyllra og áferðarfallegra og litarhaftið hraustlegra.

Algengar spurningar

Invest
in your
longevity.

Þú gætir líka haft áhuga á

SkinPen Styður við náttúrulega endurnýjun. → Microneedling Radio Frequency (MRF) Stinnari og jafnari húð. → Salmon DNA andlitsmeðferð Endurnýjun og líflegri húð. →