Ísland|UK|USA
Verðlisti | Gjafabréf Panta tíma
The Ward
Forsíða›Andlitsmeðferðir›PDO þræðing
Andlitsmeðferðir

PDO þræðing

Lyftir húð og skerpir andlitsdrætti með uppleysanlegum þráðum

Panta tíma →
Lyfting.
Skýrari drættir.
Lift
Define
Sculpt

Hvað er PDO þræðing?

PDO þræðing er meðferð með Polydioxanone þráðum sem lengi hafa verið notaðir í skurðaðgerðum sem innri saumar. Þræðirnir örva kollagenframleiðslu og myndun nýrra æða. Þeir leysast upp og eyðast í líkamanum á nokkrum mánuðum.

Það má segja að meðferðin sé eins og snögg andlitslyfting án skurðaðgerðar. Aukin kollagenframleiðsla bætir áferð húðarinnar og gerir hana teygjanlegri og þéttari.

Meðferðin tekur stuttan tíma og það þarf enga sérstaka hvíld samdægurs eftir meðferð.

Áhrifin eru þríþætt: þræðirnir toga húðina upp svo lyfting sést strax, fitulagið undir húðinni dregst saman svo húðin verður þéttari, og til lengri tíma eykst kollagenframleiðsla við niðurbrot þráðanna.

Meðferðartími Stuttur tími – engin hvíld nauðsynleg
Árangur sést yfirleitt eftir Strax – lokaútkoma eftir 6–8 vikur
Fjöldi meðferða 1 (endurmat eftir 6–9 mánuði)
Hversu lengi endist árangur Allt að 3 ár
Verð frá 62.000 kr. Sjá verðlista →
Panta tíma →

Hvað gerir meðferðin?

Lyftir siginni húð
Skerpir kjálkalínu
Örvar kollagen
Án skurðaðgerðar

Hentar fyrir

  • ✓Signar kinnar
  • ✓Óskýra kjálkalínu
  • ✓Slappa húð á hálsi
  • ✓Signar augabrúnir
  • ✓Þá sem vilja lyftingu án aðgerðar
The Ward
Reykjavík

Svona fer meðferðin fram

01 Ráðgjöf Andlitið er metið og staðir fyrir þræðina valdir.
02 Staðdeyfing Létt staðdeyfing er gefin á meðferðarsvæðin.
03 Meðferð PDO þráðum er komið fyrir undir húð á völdum stöðum í andliti.
04 Endurmat Eftir 6–9 mánuði, þegar þræðirnir hafa leyst upp, metum við árangur og þörf á viðbótarmeðferð.
Náttúruleg lyfting. Án aðgerðar.

Árangur

Lyfting sést strax. Hve fljótt langtímaáhrifin koma fram fer eftir því hversu hratt líkaminn framleiðir nýtt kollagen, og þar skiptir aldur máli. Oftast má sjá lokaútkomuna 6–8 vikum eftir meðferð. Eftir endurmat ætti árangurinn að endast lengi, jafnvel í þrjú ár.

Algengar spurningar

Invest
in your
longevity.

Þú gætir líka haft áhuga á

Fyllingar Endurskilgreina og skapa jafnvægi. → Húðþétting Lyfting og stinnari húð án inngrips. → Microneedling Radio Frequency (MRF) Stinnari og jafnari húð. →