Ísland|UK|USA
Verðlisti | Gjafabréf Panta tíma
The Ward
Forsíða›Svartur föstudagur›PDO þræðir, enni til að lyfta brúnum
Svartur föstudagur

PDO þræðir
Enni

Tilboðspakki
Áður62.000 kr. Nú48.000 kr. *Enni til að lyfta brúnum

Takmarkað magn af tilboði

  • Örugg greiðsla
  • Notist innan eins árs
  • Hentar sem gjöf
Lift
Define
Sculpt

Um meðferðina

PDO þræðing er meðferð með Polydioxanone þráðum sem lengi hafa verið notaðir í skurðaðgerðum sem innri saumar. Þræðirnir örva kollagenframleiðslu og myndun nýrra æða. Þeir leysast upp og eyðast í líkamanum á nokkrum mánuðum.

Það má segja að meðferðin sé eins og snögg andlitslyfting án skurðaðgerðar. Aukin kollagenframleiðsla bætir áferð húðarinnar og gerir hana teygjanlegri og þéttari.

Meðferðin tekur stuttan tíma og það þarf enga sérstaka hvíld samdægurs eftir meðferð.

Áhrifin eru þríþætt: þræðirnir toga húðina upp svo lyfting sést strax, fitulagið undir húðinni dregst saman svo húðin verður þéttari, og til lengri tíma eykst kollagenframleiðsla við niðurbrot þráðanna.

Helstu áhrif

  • Lyftir siginni húð
  • Skerpir kjálkalínu
  • Örvar kollagen
  • Án skurðaðgerðar

Algengar spurningar

Úr hverju eru þræðirnir?

Polydioxanone (PDO), efni sem lengi hefur verið notað í skurðaðgerðum sem innri saumar.

Leysast þræðirnir upp?

Já, þræðirnir leysast upp og eyðast í líkamanum á 6–9 mánuðum.

Þarf hvíld eftir meðferð?

Nei, það þarf enga sérstaka hvíld samdægurs. Væg bólga og mar geta komið fram í nokkra daga.

Hvenær sést lokaútkoman?

Lyfting sést strax en lokaútkoman kemur oftast fram 6–8 vikum eftir meðferð. Það fer eftir því hversu hratt líkaminn framleiðir kollagen og þar skiptir aldur máli.

Hversu lengi endist árangurinn?

Eftir endurmat og mögulega viðbótarmeðferð ætti árangurinn að endast lengi, jafnvel í þrjú ár.