Ljósameðferð
The Light System
Tilboðspakki Takmarkað magn af tilboði
- Örugg greiðsla
- Notist innan eins árs
- Hentar sem gjöf
Frequency
Balance
Um meðferðina
Ljósakerfið (The Light System) er ný kynslóð ljósameðferðar sem sameinar ljós og tíðni í þeim tilgangi að styðja við taugakerfið, jafnvægi líkamans og náttúrulega endurheimt.
Tvær klukkustundir. Rými til að endurnærast.
Fáðu aðgang að einu fullkomnasta ljósa- og tíðnikerfi heims í þægilegri aðstöðu þar sem þú nýtur róar og næðis.
Margir finna greinilegan mun eftir aðeins einn tíma. En við mælum með endurtekinni komu til að viðhalda góðu jafnvægi og gefa líkamanum færi á hámarksendurheimt.
Kynntu þér The Light System ↗Hvers vegna velur fólk ljós- og tíðnimeðferð?
Ástæðurnar geta verið margvíslegar, allt frá þörf fyrir betri hvíld og meiri orku til þess að styðja við líkamann á tímum streitu, örmögnunar eða endurheimtar eftir veikindi.
Upplifunin er einstaklingsbundin. Sumir finna mun eftir fyrsta tímann en hjá öðrum verða breytingar smám saman eftir fleiri skipti.
- Endurheimt eftir streituStund til að hægja á, losa um spennu og gefa líkamanum svigrúm til hvíldar og endurheimtar.
- Dýpri hvíld og betri svefnSlökun getur hjálpað líkamanum að róast og búið hann betur undir lengri og dýpri svefn.
- Orka og skýrari hugurHvíld frá áreiti dagsins getur stuðlað að endurnæringu, aukinni orku og betri einbeitingu.
- Jafnvægi í taugakerfinuLjós og tíðni eru notuð með það að markmiði að styðja við slökun og koma á jafnvægi taugakerfisins.
