Húðþétting
Neðra andlit og háls
Tilboðspakki Takmarkað magn af tilboði
- Örugg greiðsla
- Notist innan eins árs
- Hentar sem gjöf
Tighten
Contour
Um meðferðina
Húðþétting (High Intensity Focused Ultrasound) er meðferð sem vinnur gegn öldrun og stinnir og lyftir húðinni.
Heitri orku (58–70 °C) er beint ofan í undirlag húðarinnar. Frumurnar byrja þá að vinna af krafti við að endurnýja sig og kollagenframleiðsla örvast. Þar af leiðandi stinnist húðin og „dregst saman“ þar sem hún hefur byrjað að síga, auk þess sem línur minnka.
Þetta er sú meðferð sem kemst næst skurðaðgerð án þess inngrips sem henni fylgir. The Ward notar eingöngu húðþéttingarvél í hæsta gæðaflokki og hefur sérhæft sig í sérstöku meðferðarplani sem gefur frábæran árangur.
Helstu áhrif
Lyftir og þéttir húð
Skerpir kjálkalínu
Örvar kollagenframleiðslu í dýpri lögum húðarinnar
Enginn batatími
Algengar spurningar
Finn ég fyrir meðferðinni?
Sumir finna fyrir hitatilfinningu á meðan á meðferðinni stendur.
Hversu mörg skipti þarf?
Langflestir þurfa aðeins eitt skipti.
Hvenær sést árangur?
Árangurinn kemur í ljós á tveimur til þremur mánuðum og kollagenframleiðsla helst aukin í rúmt ár.
Er batatími?
Nei, þú getur haldið áfram daglegu lífi strax.
Hvernig er þetta miðað við skurðaðgerð?
Þetta er sú meðferð sem kemst næst skurðaðgerð, án þess inngrips sem henni fylgir.
