Hárígræðsla
Varanlegur hárvöxtur með vandaðri eftirfylgni
Panta tíma →Vönduð eftirfylgni.
Renew
Permanent
Hvað er hárígræðsla?
The Ward býður upp á hárígræðslu í samstarfi við lækna erlendis. Aðgerðin sjálf fer fram í Bretlandi en eftirmeðferð hér á Íslandi. Við teljum mjög mikilvægt að vandlega sé staðið að eftirfylgni enda hefur það sýnt sig að árangurinn verður mun betri fyrir vikið.
Hárígræðsla er vinsælasta fegrunaraðgerðin hjá karlmönnum en konur koma líka til okkar. Um það bil þrír af hverjum fimm karlmönnum eru kandídatar í slíka meðferð og þó nokkrar konur eftir tíðahvörf.
Meðferðin skilar varanlegum hárvexti á svæðum þar sem enginn var fyrir. Meðferðin nýtist fólki vel sem hefur misst umtalsvert af hári en síður þeim sem eru á fyrstu stigum hárþynningar.
Að sama skapi þá hentar meðferðin þeim best sem eru með góðan hárvöxt á öðrum svæðum á höfðinu.
Eins er æskilegt að viðkomandi sé við góða heilsu, sé ekki á blóðþynningarlyfjum og þjáist ekki af neinum húðvandamálum á höfði og þá sérlega á því svæði sem vinna á með.
Aðgerðinni sjálfri er fylgt eftir með PRP og MESO meðferðum hjá The Ward á Íslandi.
Hvað gerir meðferðin?
Hentar fyrir
- ✓Þá sem hafa misst umtalsvert hár
- ✓Góðan hárvöxt á öðrum svæðum höfuðsins
- ✓Góða almenna heilsu
- ✓Þá sem eru ekki á blóðþynningarlyfjum
- ✓Þá sem eru án húðvandamála í hársverði
Reykjavík
Svona fer meðferðin fram
Árangur
Meðferðin skilar varanlegum hárvexti á svæðum þar sem enginn var fyrir. Vönduð eftirfylgni með PRP og MESO bætir árangurinn verulega.
Algengar spurningar
in your
longevity.
